Þorsteinn eftir ferð til Færeyja: Þetta getum við sko lært af þeim!

Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur skellti sér til Færeyja fyrir skemmstu með eiginkonu sinni. Þorsteinn segir frá þessu í stuttri aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og virðist hann hafa verið hrifinn af frændum okkar – að minnsta kosti segir hann að Íslendingar geti lært sitt hvað af þeim.

„Þetta var stutt ferð á vegum Ferðaskrifstofu eldri borgara. Farið var með færeysku flugfélagi og síðan ekið í hópferðabíl vítt og breitt um eyjarnar. Var það mjög svo ánægjuleg og fróðleg reynsla. Frændur okkar Færeyingar eru góðir heim að sækja og sýndist mér að við gætum sitthvað af þeim lært, til dæmis hvað varðar hreinlæti á götum og umönnun húsa.“

Þorsteinn segir að eitt hafi þó vakið sérstaka athygli hans.

„Það voru strætisvagnarnir, sem Færeyingar nota óspart, enda heimta þeir engin fargjöld. Við hjónin gátum ekki staðist freistinguna og fórum spöl með einum vagninum. Þetta leiddi hugann að því ástandi sem ríkir hér í Reykjavík þar sem strætisvagnar aka nánast tómir lungann úr deginum. Hvernig væri að fella fargjöldin niður, a.m.k. tímabundið, og sjá hver áhrifin verða? Ég hef grun um að fjöldi manns myndi nýta sér þennan fararmáta, margir í fyrsta skipti.“

Þorsteinn segir að þetta gæti dregið verulega úr umferð einkabíla og þeim kostnaði og töfum sem henni fylgir. Svo ekki sé minnst á mengun.

„Mætti reikna það til mótvægis við hallarekstur strætisvagnanna. Ég hef vakið máls á þessu við kunningja mína og fengið jákvæðar undirtektir hjá flestum. Hvort ráðamenn borgarinnar sjá þetta í sama ljósi er annað mál. En það sakar ekki að koma hugmyndinni á framfæri.“