Þorsteinn V. Einarsson, kynjafræðingur og umsjónarmaður Karlmennskunnar, birti myndbönd á Twitter-síðu sinni í morgun sem sýnir viðbrögð nokkurra karlmanna við færslur eða fréttir á Facebook sem þeir eru ekki sammála.
„Í alvöru!? Eitt algengasta reaction kallakalla er hláturkall. Hvað knýr menn til að bregðast við með hláturkalli á content sem er ekki fyndið? Afhverju eru menn svona ógeðslega krumpaðir að innan!?,“ spyr Þorsteinn.
Í öðru myndbandinu sýnir hann viðbrögð á Facebook við frétt Vísis um Þórhildi Gyðu Arnarsdóttur sem brást við skýrslu nefndar KSÍ um atburðarásina sem leiddi til falls formanns og stjórnar KSÍ. Um var að ræða venjulega frétt en viðbrögðin á Facebook sögðu ákveðna sögu: Af 57 viðbrögðum við fréttina voru 33 í formi svokallaðs hláturkalls eins og meðfylgjandi myndband sýnir.
Þorsteinn er ekki sáttur við kynbræður sína og segir: „Svo oggulitlar smásálir sem upplifa sig stóra kalla með því að traðka á öðrum. Þvílíka krumpið. Ættu kannski að eyða tímanum frekar í að vinna úr æskunni sinni.“
Í alvöru!? Eitt algengasta reaction kallakalla er hláturkall. Hvað knýr menn til að bregðast við með hláturkalli á content sem er ekki fyndið? Afhverju eru menn svona ógeðslega krumpaðir að innan!? pic.twitter.com/sqOQwphETA
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) December 8, 2021
Og hér… btw þessi Helga Dögg er skyrasta dæmi um styðjandi kvenleika og hvernig kona getur verið varðhundur feðraveldis. pic.twitter.com/dKbBGnecgz
— Þorsteinn V. (@idnadarmadurinn) December 8, 2021