Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins, furðar sig á því að vöruverð hafi ekki lækkað samhliða styrkingu krónunnar. Þorsteinn vakti athygli á þessu í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag.
Þorsteinn benti á að krónan hefði gefið nokkuð skarpt eftir á síðasta ári. Þannig var verðmæti Bandaríkjadals í september síðastliðnum 139 krónur, 129 krónur í janúar og 125 krónur nú um stundir.
„Krónan hefur sem sagt styrkst um 11% frá því í septemberlok í fyrra. Þegar slík styrking verður þá byrja menn að spyrja um vöruverð á Íslandi, hvers vegna það komi ekki til með að lækka,“ sagði Þorsteinn og bætti við að oftar en ekki væru svörin á þá leið að það væri verið að selja gamlar birgðir sem keyptar voru á hærra verði. „Þeir eru alltaf að selja gamla birgðir. Ég væri ekki til í að kaupa appelsínu frá því í fyrra, til dæmis, núna.“
Þorsteinn benti á að verðbólgan væri nú í kringum 4% og spár gerðu ráð fyrir að hún verði í þeim hæðum út þetta ár. „Það er í sjálfu sér óskiljanlegt, herra forseti, þegar við tökum tillit til þess að krónan er að styrkjast svo mikið sem raun ber vitni.“
Þorsteinn sagði að verslunin hefði bent á að launahækkanir hefðu mikið að segja.
„Í þeirri verslun sem ég geri mín innkaup þarf ég yfirleitt að afgreiða mig sjálfur vegna þess að það er búið að taka nánast alla kassa. Ég veit ekki hvort róbótarnir hafa fengið svona mikla launahækkun, að það komi í veg fyrir lækkun á verði til almennings.“
Þorsteinn rifjaði svo upp að í dag eða í gær hafi ein stærsta verslunarkeðja landsins, Festi, sem rekur meðal annars Krónuna og N1, tilkynnt að rekstrarhagnaður samstæðunnar hefði hækkað umfram væntingar um 50% á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
„Nú verður að spyrja hvers vegna fyrirtæki sem verður fyrir slíkum búhnykk getur ekki lækkað vöruverð. Og það verða að koma skýr svör, herra forseti, við þeirri spurningu.“