„Á að banna snjallsíma á Alþingi? Við umræðurnar í gær hékk þorri þingmanna í símanum. Kom ekki vel út í sjónvarpinu,“ segir Egill Helgason fjölmiðlamaður í færslu á Facebook-síðu sinni.
Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana fóru fram á Alþingi í gærkvöldi og vakti það athygli sumra hversu margir þingmenn voru í símanum meðan fulltrúar flokkanna fluttu sínar ræður.
Athygli var meðal annars vakin á þessu á Twitter-í gærkvöldi þar sem meðfylgjandi skjáskot birtist. Við myndina var skrifað: „Hversu margir þingmenn eru í símanum í vinnunni?“ Þar mátti sjá nokkra þingmenn með augum á snjalltækjum sínum. Við myndina skrifaði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, að þingmenn sinntu líka vinnu sinni í tækjunum.
Fleiri virðast hafa tekið eftir þessu ef marka má athugasemdir undir færslu Egils.
„Já, þetta var til skammar. Mikil óvirðing að hanga i símanum þegar fólk er í pontu,“ segir til dæmis í einni athugasemd. „Á fundum í stjórnsýslunni og í einkageiranum, þykir það ósvífni, dónaskapur og virðingarleysi gagnvart öðrum fundamönnum að hanga í símanum. Leiðinlegt að alþingismenn skulu ekki virða einfalda kurteisi í samskiptum,“ segir í annarri athugasemd.