Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir að til að hafa hemil á útbreiðslu smita í samfélaginu þurfi verulegar takmarkanir á hegðun og samgangi fólks. Í viðtali við Fréttablaðið í dag virðist Þórólfur boða hertar aðgerðir á næstunni til að stöðva smitbylgjuna sem nú ríður yfir landið.
Hátt í 900 manns greindust með Covid-19 í gær og segir Þórólfur að smittölur dagsins séu í raun hærri en þessi tala gefur til kynna.
„Þessar tölur eru raunverulega hærri en þær segja því í nótt komu fleiri inn sem koma inn í tölur dagsins í dag. Þetta er meira en opinberar tölur sýna og þetta er áfram í veldisvexti,“ segir Þórólfur við Fréttablaðið.
Eins og komið hefur fram er mikið álag á Landspítalanum og þurfti til að mynda að loka hjartadeildinni í gær vegna smita meðal sjúklinga og starfsfólks. Alls eru 95 starfsmenn Landspítalans í einangrun.
Þórólfur segist líkt og áður horfa á spítalann og kerfið allt þegar hann semur sínar tillögur til heilbrigðisráðherra.
„Það vita allir hvað við höfum gert áður til að takmarka útbreiðslu. Það er engin töfralausn; ef menn vilja virkilega herða og hafa hemil á útbreiðslu þá verður það ekki gert nema með verulegum takmörkunum á hegðun fólks og samgang fólks.“
Þórólfur varar þó við því að hugsanlega verði árangur af aðgerðum ekki eins mikill og áður. Það verði að hafa það í huga. Þá eru smitin orðin það mörg að nær ómögulegt er að halda úti einhverri raunverulegri rakningu.
Við höfum ekki mannskap að rekja smitin og segja hvar fólk smitaðist. Smitrakningin er að reyna að finna útsetta sem hafa hugsanlega smitast og koma skilaboðum til þeirra. Við höfum varla undan með þennan mannskap. Rakningin er í raun og veru ekki til staðar núna,“ segir hann og bætir við aðspurður að hann hafi ákveðnar áhyggjur af áramótunum. Hvetur hann fólk til að takmarka samgang.
„Við við vitum hvernig veiran smitast á milli manna og við vitum að hún smitast hratt. Þó flestir sem fái Ómikron fái væg einkenni ekki hægt að ábyrgjast að allir séu þannig. Það geta komið fram alvarleg veikindi.“
Allt viðtalið við Þórólf má nálgast hér.