Þórólfur þreyttur á að vera álitinn vondi kallinn: Ég er bara að sinna mínu hlutverki

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir miður þegar menn persónugera Covid og aðgerðir í faraldrinum í honum. Þetta segir Þórólfur í áhugaverðu spjalli við Fréttablaðið.

Þórólfur hefur verið gagnrýndur þó nokkuð að undanförnu fyrir að leggja til hertari aðgerðir innanlands. Svo fór á miðnætti í gær að aðgerðir voru hertar og er nú 20 manna samkomubann í gildi í stað 50 manna samkomubanns áður. Smitum hefur farið hratt fjölgandi að undanförnu en þrátt fyrir það hefur Þórólfur sætt oft á tíðum óvæginni gagnrýni, til dæmis meðal stjórnmálamanna og á samfélagsmiðlum:

Í viðtali við Fréttablaðið segist Þórólfur einfaldlega vera að sinna sínu hlutverki, embætti sóttvarnalæknis sem er skilgreint í lögum.

„Ég sé ekki nema brot af þessu og er ekki að velta mér upp úr því mikið þannig. Mér finnst það náttúr­­lega miður þegar menn per­­sónu­­gera Co­vid og að­­gerðir gegn Co­vid í mér. Ég er að sinna mínu lög­bundna hlut­­verki sem sótt­varna­­læknir. Það er út­listað mjög skýrt og skil­­merki­­lega í sótt­varna­lögum hvað ég á að gera,“ segir Þór­ólfur í sam­tali við Frétta­blaðið og bætir við að ef hann gerði það ekki væri hann að bregðast skyldum sínum.

„Mér heyrist meira að segja lög­lærðir menn vera að tjá sig á þennan máta. Mér finnst mjög miður að menn skulu setja þetta þannig upp, eins og það að ef ég væri ekki í þessari stöðu eða í þessum að­­gerðum væri ekkert Co­vid og þá væru engar að­­gerðir, þá væri allt voða gaman. Ég held að menn séu al­­gjör­­lega að mis­skilja þetta“, segir hann.