Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir greindi frá því á upplýsingafundi almannavarna í dag að flest smit sem væru að greinast þessa dagana væru af sama veirustofni. Upprunalega var um að ræða tvo veirustofna en hinn virðist hafa horfið, að sögn Þórólfs.
Aðspurður um hvaða veirustofn sé að ræða, og hvort það sé sá sami og var rakinn til franskra ferðamanna sem komu hingað til landsins síðastliðinn ágúst, sagði Þórólfur að það skipti ekki máli.
„Þetta er það afbrigði sem ekki má nefna,“ sagði Þórólfur og virtist þar með staðfesta að stofninn sem um ræðir sé sá sami og hjá ferðamönnunum. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var meðal þeirra sem gagnrýndu að yfirvöld skyldu skella skömminni á frönsku ferðamennina en málið vakti athygli víðs vegar um heim.
Eins og staðan er í dag eru 747 í einangrun með virkt smit og fimmtán á sjúkrahúsi. Af þeim eru fjórir á gjörgæslu en þrír í öndunarvél. Búið er að boða hertar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu veirunnar og er von á auglýsingu ráðherra innan skamms.