Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir mun á næstu dögum skila inn tillögum til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra um frekari tilslakanir innanlands. Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
Ekkert innanlandssmit greindist í gær og er það sjötti smitlausi dagurinn í röð. 26 eru nú í einangrun vegna smits og átta á sjúkrahúsi. Fjöldi þeirra sem hafa verið bólusettir hérlendis nálgast 10.000 óðfluga.
Nokkuð hefur verið kallað eftir því að grímuskylda verði afnumin í ljósi góðrar stöðu innanlands.
Sjá einnig: Búnir að fá nóg: „Af hverju þarf að telja inn í verslanir og af hverju er grímuskylda?“
Þórólfur segir mikilvægt að fara hægt í tilslakanir og vildi ekki gefa mikið upp um það hvað gæti falist í tillögum hans til Svandísar. Af orðum hans að dæma stendur þó ekki til að afnema grímuskylduna strax og sagði hann að slíkar tillögur myndu að líkindum koma með seinni skipunum.
Eins og Hringbraut greindi frá í vikunni fjölgar þeim sífellt sem kalla eftir því að grímuskylda verði afnumin. „Af hverju þarf að telja inn í verslanir og af hverju er grímuskylda. Já og af hverju er tveggja metra fjarlægðarregla og fólki bannað að horfa á íþróttakappleiki nema í sjónvarpi,“ spurði Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður.
„Þetta er orðið ágætt,“ sagði Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, í vikunni og kallaði um leið eftir því að allar takmarkanir innanlands yrðu felldar niður.