Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur svarað þeirri gagnrýni sem hefur komið frá leikskólakennurum þess efnis að leikskólum hafi ekki verið lokað með sama hætti og grunn-, framhalds- og háskólum þegar harðari sóttvarnarráðstafanir voru tilkynntar í gær. Þórólfur kom inn á þetta í erindi sínu á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
Leikskólakennarar hafa gagnrýnt þetta harðlega og telja að yfirvöld hafi sýnt þeim tillitsleysi með því að hafa leikskóla áfram opna. Mbl.is ræddi í morgun við Þórhildi Sif Þórmundsdóttur, leikskólakennara í Reykjanesbæ, sem sagði starfi sínu lausu eftir tíðindin.
„Ef heimsendir væri boðaður annað kvöld þá yrðu leikskólar samt opnir til klukkan 14,“ sagði hún meðal annars í viðtalinu, augljóslega ósátt.
En Þórólfur segir að tölurnar tali einfaldlega sínu máli. Þannig gefi upplýsingar frá Norðurlöndunum til kynna að smithætta sé ekki aukin hjá börnum á leikskólaaldri og hjá börnum yngri en sex ára. Þessa nálgun hefðu stjórnvöld notað allan faraldurinn enda talið að börn séu miklu minna smitandi.
Þórólfur sagði að þessi nálgun hefði gefist vel og ekki komið upp vandræði í sambandi við hana. Þá benti hann á að lokun leikskóla gæti valdið röskun á annarri starfsemi, til dæmis innan heilbrigðisþjónustunnar. Rauði þráðurinn væri þó sá að engin farsóttarleg rök væru fyrir því að loka leikskólum.