Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir svarar í Morgunblaðinu í dag fyrir þrálátan orðróm þess efnis að lyfjarisinn Pfizer hafi samþykkt að láta Íslendingum í té bóluefni fyrir alla landsmenn.
Nokkuð er liðið síðan greint var frá þreifingum um að Ísland yrði einskonar tilraunaland fyrir bóluefni Pfizer. Fyrirtækið myndi þannig tryggja nægt bóluefni til að hjarðónæmi næði að myndast og um leið yrði gerð rannsókn á virkni efnisins.
Kári Stefánsson og Þórólfur Guðnason hafa rætt málið við Pfizer og hefur orðrómur verið á kreiki um að samningar séu í höfn. Segir sagan að jafnvel sé búið að ákveða nákvæmlega hvenær öllum bólusetningum lýkur hér á landi – það gæti orðið fyrr en marga grunar.
Þórólfur þvertekur hins vegar fyrir það í samtali við Morgunblaðið og segir að ekkert sé í höfn. Í raun sé ekkert meira að frétta en þegar hefur komið fram.
„Þetta er ekki komið svo langt að búið sé að ákveða hvaða daga eigi að bólusetja. Ég myndi nú vita það. Þetta er ekki komið eins langt og einhverjir eru að segja. Það er áhugi hjá Pfizer og áhugi hjá okkur. Menn eru bara að ræða málin og umfram það er ekkert klárt,“ segir Þórólfur.