Þórólfur svaraði Arnþrúði: „Þetta er ekki rétt - Ég var á fundi með sóttvarnarlækni Svía í morgun“

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir enga leynd yfir innihaldi bóluefna og þá sé ekkert um það í samningum um að bólusetja börn niður í 6 mánaða fyrir Covid. Þetta kom fram á fundi Almannavarna í dag.

Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsstjóri Útvarps Sögu spurði út í neyðarleyfi Pfizer frá árinu 2020. „Þá fóru þeir fram á leynd um innihald bóluefnanna. Svíar hafa ákveðið að bólusetja ekki börn yngri en 11 ára af þessum ástæðum og vegna vísindalegrar óvissu um afleiðingarnar. Hver tók þessa ákvörðun hér á Íslandi? Og hvers vegna er verið að taka þessa áhættu þegar það er ekki vitað um afleiðingar fyrir börnin?“

Þórólfur svaraði hvass:

„Þetta er ekki rétt. Ég var á fundi með sóttvarnarlækni Svía í morgun,“ sagði hann og umræðuefni þeirra hafi einmitt verið ákvörðun Svía um að bólusetja ekki öll börn. „Það var ekki vegna þess að þeir væru hræddir um alvarlegar afleiðingar af bólusetningum á þessum börnum. Það var heldur ekki vegna þess að leynd væri yfir innihaldi bóluefna.“

Ástæðan sé að Svíar telja að ávinningurinn af bólusetningum barna sé ekki jafn mikill og í öðrum löndum þar sem útbreiðsla Covid-19 hafi verið meiri þar.

Arnþrúður sagði að hún ætlaði að leiðrétta Þórólf, það væri leynd yfir innihaldi bóluefnanna: „Þið vitið ekkert um afleiðingar til lengri tíma,“ sagði hún og bætti við að Pfizer sé að kynna efni sem ætlað sé börnum 6 mánaða til 4 ára. „Ætlið þið að fara út í það til að uppfylla kröfur um bóluefnasamningana?“

Þórólfur sagði að hann hefði áður svarað Arnþrúði um þetta. „Það er ekkert í samningum sem kveður á um að bólusetja einn eða neinn,“ sagði hann. „Það engin leynd yfir því sem er í bóluefnunum. Það er hægt að fletta upp í sérlyfjaskrá Lyfjastofnunar til að sjá innihaldið, hver styrkleikinn er og svo framvegis. Það liggur algjörlega ljóst fyrir.“

Þá hafi ekkert verið rætt um að bólusetja svo ung börn. „Það er ekki komið á neitt umræðustig og engin ákvörðun verið tekin um það.“