Þórólfur: Skynsamlegt að stefna að því að opna landið 1. maí

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir kveðst þeirrar skoðunar að skynsamlegt sé að stefna að því að opna landamærin hér á landi 1. maí næstkomandi. Þetta kom fram í máli Þórólfs í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Núgildandi reglugerð um landamærin gildir til 1. maí næstkomandi.

„Landamærin eru veikasti hlekkurinn núna, það hafa komið smit þar inn í landið. Alveg klárlega og við erum að reyna að gera það eins vel og hægt er án þess að segja að við séum með lokuð landamæri. Við getum aldrei lokað landamærunum að mínu mati. Við erum með Íslendinga erlendis og erum með Íslendinga sem þurfa að fara erlendis,“ sagði Þórólfur meðal annars.

Hann benti á að stjórnvöld væru að vinna að áframhaldandi fyrirkomulagi á landamærunum.

„Það hefur verið talað um að nota til viðmiðunar þetta litakóðunarkerfi frá ESB, hverja þarf að prófa og hverja ekki og ýmsar útfærslur. Sú vinna er í gangi og það er stefnt að því að reyna að opna á einhverjum tímapunkti.“

Þegar hann var spurður hvort það væri ekki glapræði að stefna að því að opna landið 1. maí næstkomandi, í ljósi stöðunnar í löndunum í kringum okkur, sagði Þórólfur:

„Ég veit það ekki, það er dálítill tími í 1. maí og þetta er það sem stjórnvöld hafa lýst yfir. Það getur verið að ég líti á þetta eitthvað öðruvísi í sjálfu sér þó mér finnist skynsamlegt að stefna að þessu. Ég veit ekki til þess að stjórnvöld hafi sagt hvernig fyrirkomulagið nákvæmlega verði á landamærunum 1. maí, ég held að það sé ekki búið að ákveða það endanlega.“