„Ég er ósammála Kára í þessu,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
Þórólfur var þar spurður út í ummæli Kára Stefánssonar, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, sem sagðist í viðtali við 21 á Hringbraut í gærkvöldi ekki telja nauðsynlegt að heilbrigðisstarfsfólk yrði í forgangi þegar kæmi að bóluefni gegn COVID-19. Það hefði sýnt sig í mótefnamælingum að það væri ekki útsettara fyrir smiti.
Þórólfur sagðist þó vera ósammála Kára hvað þetta varðar.
„Heilbrigðisstarfsmenn sem að eru í sjúklingakontakti verða í forgangi hjá okkur og eru það líka samkvæmt tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar,“ sagði Þórólfur.
Fjögur kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og hefur þeim farið mjög fækkandi síðan gripið var til hertra aðgerða, meðal annars harðari samkomutakmarkana. 52 eru á sjúkrahúsi og fjórir á gjörgæslu.
Þórólfur sagði á fundinum að bólusetning gegn veirunni væri á forræði sóttvarnalæknis og vinna við skipulagningu hennar væri þegar hafin.
Hér að neðan má sjá viðtalið við Kára í gærkvöldi.