Þórólfur segir Ísland ekki ætla að fara Svíaleiðina í bólusetningum

Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir segir að miklu fleiri lönd hafi ákveðið að fara aðra leið en Svíar þegar kemur að bólusetningum barna, það sé rétt ákvörðun að bólusetja þau. Þetta sagði hann í svari við spurningu frá Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra Fréttin.is, á upplýsingafundi Almannavarna í dag.

Sagði Margrét að Þórólfur hafi sagt í þættinum Sprengisandi í ágúst í fyrra að það þyrfti að ná hjarðónæmi og það væru vonbrigði að við hefðum ekki náð hjarðónæmi með bólusetningum. Þá spurði hún út í grímuskyldu, væri ekki nóg fyrir óbólusetta sem hafi smitast að sýna mótefnavottorð í verslunum.

Þórólfur telur það misskilning. „Það sem ég sagði á Sprengisandi í ágúst var það að ég taldi að við værum komin á þann stað að við gætum ekki útrýmt veirunni í samfélaginu og við værum að horfa upp á það að við þyrftum að sætta okkur við að veiran gengi í samfélaginu. Á sama tíma myndum við reyna að ná sem mestu ónæmi í samfélaginu og vernd með bólusetningu og hægt er.“

Þórólfur sagði að það væru margar undanþágur fyrir þá sem hafi smitast, til dæmis á landamærunum. Verndin sem fengist af smiti væri tímabundin.

Margrét spurði þá hvers vegna bólusetja ætti börn þar sem þeim stafaði ekki hætta af Ómíkron afbrigðinu, þá sé bóluefnið ekki hannað fyrir Ómíkron og Pfizer ætli að gefa út bóluefni gegn afbrigðinu í mars eða apríl.

„Bóluefnið sem verður tilbúið í mars/apríl verður ekki tilbúið til dreifingar fyrr en einhverntímann í sumar. Það er hollt að hafa það í huga. Rannsóknir hafa sýnt það að það bóluefni sem við erum að nota virkar mjög vel gegn alvarlegum afleiðingum af Ómíkron afbrigðinu. Þó það sé ekki hannað sérstaklega fyrir Ómíkron afbrigðið þá verndar það gegn smitum og alvarlegum afleiðingum.

Það er rétt, Svíar hafa ákveðið að þeir ætli ekki að bólusetja börn nema börn með undirliggjandi sjúkdóma verður boðin bólusetningin. Svíar eru bara ein af mjög fáum þjóðum í Evrópu sem taka þessa afstöðu. Það eru miklu fleiri lönd, bæði á Norðurlöndunum og í Evrópu sem hafa tekið sömu ákvörðun og við í bólusetningum. Ég tel að það sé rétt ákvörðun.“