Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir það aldrei hafa verið stefnuna að láta veiruna ganga í samfélaginu til þess að ná fram hjarðónæmi en ummæli Þórólfs í Sprengisandi í morgun komu þó nokkrum á óvart.
„Við þurfum einhvern veginn að sigla þannig milli skers og báru núna í þessu, að fá ekki of mikið af alvarlegum veikindum svo að spítalakerfið riði ekki til falls en samt reyna að ná þessu hjarðónæmi með þá að láta veiruna einhvern veginn ganga,“ sagði Þórólfur meðal annars í þættinum.
Ummælin voru ekki í samræmi við það sem aðrir sérfræðingar hafa verið að segja undanfarna daga og sagði til að mynda staðgengill sóttvarnalæknis, Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, í kvöldfréttum Stöðvar 2 að það væri ekki endilega markmiðið að ná hjarðónæmi.
Þá sagði Helga Vala Helgadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis, í samtali við mbl.is að ummæli Þórólfs væru ekki í samræmi við það sem rætt var á fundi nefndarinnar í vikunni, þar sem staðgengill sóttvarnalæknis var til að mynda.
Sjá einnig: Gætum þurft að glíma við Covid-19 í tvö ár til viðbótar
„Þetta eru stórar fréttir. Það sem hann er að segja í dag er ekki alveg sambærilegt við það sem sérfræðingar sögðu á fundi velferðarnefndar í vikunni. Samt getur maður ekki annað en treyst því að hann sé að segja þetta eftir sinni bestu sannfæringu,“ sagði Helga Vala.
Í viðtali í kvöldfréttum RÚV sagði Þórólfur aftur á móti að um misskilning hafi verið að ræða, mögulega hafi ummælin verið tekin úr samhengi eða hann ekki orðað þau nógu skýrt. „Auðvitað er þetta þannig að veiran verður bara látin geysa, það hefur aldrei verið stefnan,“ sagði Þórólfur við RÚV.
„Til þess að ná hjarðónæmi í samfélaginu þá þurfa fleiri að vera ónæmir gegn veirunni og það er þá ekki hægt að gera það öðruvísi heldur en að bólusetja betur eins og við erum að gera,“ sagði Þórólfur og vísaði til örvunarskammta og endurbólusetningu viðkvæmra hópa. „En að segja „nú bara látum við veiruna ganga lausa um samfélagið,“ það hefur enginn sagt.“