Þór­ólfur sár út í Kára og segir hann beina sverðinu að fóst­bróður sínum

„Kári er í jötun­móð og hefur sveiflað sverðinu til hægri og vinstri og meðal annars beint því að fóst­bróður sínum í co­vid að þessu sinni. Hann er með hug­myndir um miklu meiri til­slakanir, eða tölu­vert meiri, en við erum með og hann hefur yfir­leitt verið á hinni línunni. Þetta er bara á­gætis inn­legg í um­ræðuna en hins vegar er margt sem þarna kemur fram. Eins og til dæmis að við séum ó­skýr og höfum ekki trú á því sem við erum að gera núna. Ég skil ekki alveg hvað er meint með því,“ segir Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir í há­degis­fréttum Bylgjunnar.

Þar bregst Þór­ólfur við um­mælum Kára Stefáns­sonar um að hann vilji að öllum CO­VID-19 tak­mörkunum verði af­létt hér innan­lands. Þór­ólfur segist ekki telja það réttan tíma­punkt.

„Ég fellst ekki á það og við reyndum það um mánaðar­mótin júní/júlí með af­leiðingum sem mér finnst margir vera búnir að gleyma. Far­aldurinn fór á flug og um 2,5 prósent af þeim sem hafa smitast hafa þurft að leggjast inn á spítala. Hundrað manns hafa þurft að leggjast inn á sjúkra­hús og ef við fáum meiri út­breiðslu í far­aldrinum heldur en þetta fáum við bara enn þá fleiri inn á spítala.“

Vísar á­sökunum um eyði­leggingu lista­lífs í landinu til föður­húsa

„Annað sem kom mér mjög á ó­vart er að það sé verið að kenna okkur um það að leggja lista­lífið í rúst. Ég skil ekki þá á­sökun og við höfum verið í sam­ráði við for­svars­menn sviðs­lista um þessar til­slakanir sem eru í gangi núna. Ég vísa því nú til föður­húsanna að við séum að eyði­leggja lista­líf í landinu.“