Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir viðurkennir að heimsfaraldurinn og hans gríðarlega vinna vegna hans hafi komið niður á fjölskyldulífinu, í helgarviðtali Fréttablaðsins.
Þar lýsir Þórólfur því hvernig hann hefur unnið myrkanna á mili frá upphafi faraldurs. Hann er giftur Söru Hafsteinsdóttur, fyrrverandi yfirsjúkraþjálfara á Landspítalanum og eiga þau tvo syni.
„Fjölskyldan hefur stutt mig gríðarlega. Það er auðvitað ótrúlegt hvað fólk lætur ganga yfir sig, allt þetta var auðvitað í algjörum forgangi og maður kastar öllu frá sér. Þetta kemur niður á fjölskyldulífi. Það er bara það sama og almenningur hefur þurft að gera líka, það hafa verið takmarkanir, fólk hefur ekki náð að hittast og þvíumlíkt. Þetta á við fleiri en það er auðvitað hárrétt að það er frumskilyrði til að maður haldi þetta út að maður hafi góðan bakhjarl heima fyrir,“ segir Þórólfur.
Hann segir að markmiðið hafi ekki að verða þekktur. Hann hafi bara verið að vinna sína vinnu. „Ég hef oft sagt að það plagar mig ekki neitt þó að fólk sé að veita mér athygli. Þetta þýðir þó að maður getur ekki pissað undir húsvegg í góðu tómi eins og maður kannski gerði. Það má reyndar ekki, ég held að það sé ólöglegt að pissa úti,“ segir Þórólfur á léttu nótunum.