Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir stefnt að því að líkamsræktarstöðvar fái að hefja starfsemi á nýjan leik þann 25. Maí næstkomandi. Þetta kom fram í máli Þórólfs á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra.
Hörð gagnrýni hefur komið fram þar sem stefnt er að opnun sundstaða þann 18. maí næstkomandi. Hefur Björn Leifsson, eigandi World Class, meðal annars gagnrýnt það að lítill munur sé á því að fara í sund, Hagkaup eða ræktina.
Nú hefur Þórólfur svarað þessari gagnrýni og segir hann að næsta skref, þann 25. maí að óbreyttu, muni til dæmis taka til líkamsræktarstöðva en einnig annarrar starfsemi. Þetta verður þó áfram háð ákveðnum takmörkunum en nákvæm útfærsla liggur þó ekki fyrir. Þórólfur sagði þó að í þessu samhengi hefði verið talað um hundrað einstaklinga.