Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir er laus úr sóttkví eftir að seinni niðurstaða sýnatöku sem hann gekkst undir reyndist neikvæð. Tæp vika er síðan Þórólfur fór í sóttkví eftir að kórónuveirusmit kom upp á sóttvarnasviði embættis landlæknis.
Greint var frá því í fréttum RÚV klukkan 14 að Þórólfur væri laus úr sóttkví eftir að seinni skimun reyndist neikvæð.
Eins og greint var frá í morgun greindust tólf manns með kórónuveirusmit hér á landi í gær, níu voru í sóttkví og þrír utan sóttkvíar. 149 eru nú í einangrun vegna COVID-19, 24 á sjúkrahúsi og einn á gjörgæsludeild.