Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, segir ljóst að kórónuveirufaraldurinn sé á niðurleið, í samtali við Ríkisútvarpið. Hinsvegar er annar faraldur á uppleið, inflúensufaraldurinn.
„Það er að gerast núna sem ég hef bent á áður að gæti gerst, að við fengjum stóran inflúensufaraldur. Við vitum svo sem ekki hversu stór hann verður eða alvarlegur, af því við erum bara rétt í byrjun,“ segir Þórólfur.
Hann segir áhrif samkomutakmarkana nú fara að gæta á landsmenn. „Þannig við getum búist við töluverðri útbreiðslu núna af því inflúensan hefur ekki verið að ganga síðustu tvö ár. Þá er ónæmið miklu lélegra nú en oft áður,“ segir Þórólfur.
Hann hvetur fólk til að fara í bólusetningu. „Sérstaklega þá sem eru með undirliggjandi vandamál,“ segir Þórólfur.