Þór­ólfur hefur á­hyggjur vegna þeirra fjölmörgu Íslendinga sem voru á Tenerife um jólin

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segist hafa á­kveðnar á­hyggjur vegna þeirra fjöl­mörgu Ís­lendinga sem eru að snúa heim til Ís­lands eftir dvöl á Tenerife yfir jólin.

Þór­ólfur ræðir stöðuna í far­aldrinum í á­huga­verðu við­tali sem birtist á vef Frétta­blaðsins nú í há­deginu.

Að­spurður um Ís­lendingana sem eru að snúa aftur heim frá Tenerife og öðrum sólar­landa­stöðum segist Þór­ólfur hafa á­hyggjur af því. Staðan sé þó öðru­vísi en oft áður gagn­vart landa­mærunum því tölurnar séu svo háar hér.

„Við höfum greint mjög marga Ís­lendinga á landa­mærunum sem eru að koma heim. Það er á­stæða til þess að hafa á­hyggjur af þessu en við erum líka með mjög mikla út­breiðslu hér innan­lands,“ segir Þór­ólfur. „Veiran er úti um allt.“

Þór­ólfur segir að þrátt fyrir háar smit­tölur síðustu daga sé hann ekki með nýtt minnis­blað í smíðum. Hvorki vegna þeirra gífur­legu háu smittalna sem sést hafa um há­tíðirnar né þeirra þúsunda Ís­lendinga sem streyma nú til landsins frá Spáni. Hann segir þó sí­fellt verið að meta stöðuna og hann hafi verið í stöðugum sam­skiptum við Willum Þór Þórs­son, heil­brigðis­ráð­herra.

„Þetta er á upp­leið. Stóra spurningin er hversu stórt hlut­fall skilar sér inn á spítalann. Það er það sem við og allt heil­brigðis­kerfið erum að undir­búa okkur undir, að fjöldinn verði mikill jafn vel þó að hlut­fallið sé lágt,“ segir Þór­ólfur.