Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir skellti sér í klippingu í dag. Þórólfur var gestur Kastljóssins í kvöld þar sem Sigríður Hagalín Björnsdóttir spurði hann meðal annars hvers eðlis hertari aðgerðir yrðu vegna útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi.
„Ég sé að þú hefur sjálfur farið í klippingu í dag. Verður hárgreiðslustofunum lokað?“ spurði Sigríður en líklegt má telja að Þórólfur hafi ekki búist við þessari spurningu, að minnsta kosti miðað við viðbrögð hans. Þórólfur hló en sagði reyndar að hann hefði verið búinn að ákveða fyrir nokkru að fara í klippingu í dag.
„Ég var búinn að ákveða fyrir löngu að þetta yrði stóri dagurinn,“ sagði Þórólfur og hló dátt.
Líklega verða hertari aðgerðir útlistaðar nánar í kvöld og sagði Þórólfur, á öllu alvarlegri nótum, að við búum að reynslunni síðan í mars síðastliðnum. Þá hafi margt gengið á, hörðum lokunum verið beitt í byrjun en síðan hafi verið farið í tilslakanir og undanþágur veittar.
Sagði Þórólfur að í nýju tillögunum yrði minna um undanþágur og meira um að gera til dæmis grímunotkun að skyldu. Þá sagði Þórólfur að læknastofur geti haldið áfram starfsemi sinni með skilyrðum, grímuskyldu til dæmis.