Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að þrátt fyrir góð tíðindi um fjölda smita í gær borgi það sig ekki að fagna of snemma. Alls greindust 27 með kórónuveiruna í gær sem er svipaður fjöldi og um helgina þegar alla jafna færri sýni eru tekin.
Þórólfur segir í frétt RÚV að það muni ráðast næstu daga hver þróunin verður og bendir hann á að enn sé að greinast talsverður fjöldi fólks á Norðurlandi. Erfitt sé að sjá hvort búið sé að ná utan um hópsýkingu á Eyjafjarðarsvæðinu.
„Það er jákvætt að það eru ekki að greinast margir héðan frá höfuðborgarsvæðinu eða fleiri hópsýkingar sem eru að greinast. Þetta er jákvætt en það borgar sig ekki að fagna of snemma,“ hefur RÚV eftir Þórólfi.
Alls eru 74 á sjúkrahúsi vegna COVID-19 og fjórir á gjörgæslu. Búast má við því að heildarfjöldi smita hér á landi frá upphafi faraldursins fari yfir 5.000 á allra næstu dögum. Sautján hafa látist hér á landi vegna COVID-19, þar af sjö í hinni svokölluðu þriðju bylgju faraldursins.