Þórólfur ekki með grímu úti í búð en gæti dregið hana upp aftur í vissum aðstæðum

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist sjálfur vera búinn að fella grímuna og hann muni fara eftir þeim ráðleggingum sem hann gefur sjálfur. Þetta segir hann í samtali við Fréttablaðið.

Eins og flestum ætti að vera kunnugt þarf ekki lengur að bera grímur í verslunum. Þessu fögnuðu margir enda margir búnir að fá meira en nóg af grímuskyldunni. Svo eru það þeir sem ætla að halda áfram að nota grímur, bæði til að tryggja öryggi sitt og hugsanlega annarra ef viðkomandi ber veiruna.

„Ég fer bara eftir þeim ráð­leggingum sem ég gef sjálfur en ég reyni að við­hafa tveggja metra reglunni,“ segir Þórólfur sem bætir við að það hafi ekki komið honum á óvart að margir hefðu ákveðið að fella grímuna eftir að skyldunni var aflétt í gær.

„Maður vissi svo sem að það eru margir sem vilja hafa grímuna á­fram og líður hálf ó­þægi­lega inni í verslunum grímu­laus og svo eru aðrir glaðir og þetta er allt þar á milli,“ segir hann og nefnir að þær aðstæður geti komið upp að nauðsynlegt sé að taka upp grímuna. Nándarreglan sé enn í gildi þó grímuskyldan sé það víðast hvar ekki.

„Ef að­stæður eru þannig að erfitt er að fylgja henni, sér­stak­lega þegar maður er innan um ó­kunnugt fólk, þá mun ég taka upp grímu.“

Þórólfur er meðvitaður um að það gæti enn komið bakslag, en eins og fram kom í morgun greindust fimm innanlandssmit í gær, þar af voru tvö utan sóttkvíar.

Nú mega 150 manns koma saman en Þórólfur segir að það sé ekki þar með sagt að fólk eigi að hópast saman við hvert tækifæri. Það skipti máli að passa upp á nánd við aðra, sérstaklega ótengda aðila.

„Þessi tíma­punktur núna virtist á­kjósan­legur til að slaka á að­gerðum en auð­vitað kann að vera að það komi eitt­hvað bak­slag í þetta hjá okkur og þá verðum við bara að endur­meta stöðuna.“