Þór­ólfur: „Ég skil ekki hvað menn eru að tala um“

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að stjórn­völd hafi gert góða grein fyrir þeirri ó­vissu sem uppi er vegna bólu­efnis við CO­VID-19. Allar Evrópu­þjóðir séu í sömu sporum þegar kemur að af­hendingu bólu­efnis gegn veirunni.

Þetta kom fram í há­degis­fréttum Bylgjunnar og á vef Vísis.

Þing­flokkur Mið­flokksins sendi frá sér til­kynningu í morgun þar sem fram kom að óskað hefði verið eftir því að Al­þingi komi saman ekki síðar en 28. Desember næst­komandi.

„Í ljósi þeirrar ó­vissu sem nú er uppi varðandi komu bólu­efna vegna CO­VID-19 hingað til lands er nauð­syn­legt að þing­heimur fái tæki­færi til að ræða málið við ríkis­stjórnina. Undan­farna daga hafa birst mjög mis­vísandi upp­lýsingar um þá samninga sem gerðir hafa verið og ekki síður hvernig bólu­setningu verður háttað. Þar vegast upp­lýsinga­ó­reiða og ráða­leysi stjórn­valda á,“ sagði í til­kynningu flokksins.

Þór­ólfur benti á að engin þjóð sé með samning við bólu­efna­fram­leið­endur um ná­kvæma tíma­setningu á af­hendingu.

„Það er bara þannig. Og það eru ekki bara við Ís­lendingar, þetta er bara þannig að lyfja­fyrir­tækin geta ekki og vilja ekki gera þannig samning sem þau geta ekki staðið við,“ segir Þór­ólfur og bætti við að við hefðum ná­kvæmar upp­lýsingar um hversu mikið magn við fáum út mars­mánuð. Aðrar Evrópu­þjóðir séu í sömu sporum.

„Þannig ég skil ekki hvað menn eru að tala um í þessu sam­bandi.“