Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingmaður og þjóðfræðingur, segist hafa orðið svolítið langleit þegar hún heyrði orð Þórólfs Guðnasonar sóttvarnarlæknis í Kastljósi í gærkvöldi.
Þar sagði hann að minnisblað hans hafi átt að vera „innlegg í umræðuna, nokkurs konar hugmyndafræðilegar tillögur til að komast að málefnalegri niðurstöðu um hvernig við getum búið okkur undir að lifa með veirunni og ákveða hvernig við ætlum að gera það“.
Ólína bendir á að lögum samkvæmt sé það sóttvarnarlæknir sem ber ábyrgð á sóttvörnum eins og skýrt er kveðið á um í sóttvarnarlögum. „Síðan segir í 10. gr. sömu laga: „Ráðherra ákveður að fenginni tillögu sóttvarnalæknis hvort grípa skuli til opinberra sóttvarnaráðstafana, svo sem ónæmisaðgerða, einangrunar smitaðra, sótthreinsunar, afkvíunar byggðarlaga eða landsins alls, lokunar skóla eða samkomubanns.“ og í beinu framhaldi: „Sóttvarnalæknir getur beitt slíkum vörnum til bráðabirgða án þess að leita heimildar fyrir fram ef hann telur að hvers konar töf sé hættuleg, en gera skal hann ráðherra jafnskjótt kunnar ráðstafanir sínar“.“
Ólína segir að með öðrum orðum beri sóttvarnarlæknir ábyrgðina. Það sé hans að móta tillögurnar og ákveða aðgerðir með fulltingi ráðherra.
„Það á ekki að vera þannig að ráðherra ákveði til hvaða aðgerða gripið skuli til af hlaðborðinu sem sóttvarnarlæknir ber fram, þó svo að í seinni tíð hafi borið á þeirri túlkun bæði Þórólfs sjálfs og Svandísar að hennar sé valdið.“
Kveðst hún skilja lögin þannig að hlutverk ráðherra í þessu sé ekki ósvipað hlutverki forseta þegar hann samþykkir lög frá Alþingi og ráðherra sé í raun skyldugur til að samþykkja tillögur sóttvarnarlæknis.
„Ábyrgð sóttvarnarlæknis er mikil - hún er þyngri heldur en ábyrgð ráðherra í þessu tilviki, myndi ég halda. Þess vegna finnst mér ekki að sóttvarnarlæknir eigi að bjóða upp á þá túlkun að hans tillögur séu bara "minnisblöð" - hlaðborð hugmynda - fyrir stjórnmálamenn að vinna úr í samræmi við almenningsálit og (ó)vinsældir í aðdraganda kosninga. Það gæti hrint af stað óheillaþróun er ég hrædd um.“
Færsla Ólínu hefur vakið talsverða athygli og segist Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ráðherra, hafa hlustað af athygli á þessi orð Þórólfs. Þá segir Þór Saari, fyrrverandi þingmaður og frambjóðandi Sósíalistaflokksins, að Þórólfur hafi augljóslega gefist upp. Undir það tekur Ólína að einhverju leyti. „Það lyktar svolítið þannig, finnst mér,“ segir hún.