Þórólfur: Bratt farið í að opna landamærin

Þór­ólf­ur Guðn­a­son sótt­varn­a­lækn­ir seg­ir harð­ar að­gerð­ir í sótt­varn­a­mál­um sem kom­ið var á fyr­ir skömm­u hafa skipt sköp­um í að ná tök­um á COVID-19 far­aldr­in­um hér á land­i. Hann von­ast engu að síð­ur til þess að hægt verð­i að slak­a á þeim síð­ar í vik­unn­i. Þett­a sagð­i hann í þætt­in­um Spreng­i­sand­i á Bylgj­unn­i í morg­un.

„Ég held það að ef við hefð­um ekki beitt þess­um hörð­u að­gerð­um fyr­ir 2-3 vik­um síð­an þá hefð­um við klár­leg­a í mín­um huga séð mikl­u meir­i út­breiðsl­u en ég bind mikl­ar von­ir við það að í lok þess­ar­ar viku, þeg­ar þess­ar þrjár vik­ur eru liðn­ar, og ný regl­u­gerð þarf að taka við að þá get­um við far­ið að slak­a á og við höf­um gert það. Það má ekki gleym­a því það er ekki eins og við séum búin að vera með „lock­down“ all­an tím­ann,“ sagð­i hann.

Hann seg­­ir rekst­­ur sótt­kv­í­­ar­h­ót­­el­­a þung­­an bagg­­a á rík­­in­­u, bæði sé það dýrt og krefj­­ist auk þess mik­­ils mann­­afl­­a.

„Síð­an er þett­a nátt­úr­u­leg­a spurn­ing­in, ef það kem­ur í ljós að kerf­ið bara ræð­ur ekki við þett­a þá hef ég sagt líka við stjórn­völd að við verð­um að vera und­ir það búin að skoð­a það hvort við get­um tak­mark­að fjöld­a fólk sem kem­ur hing­að til lands. Get­um við sett ein­hver mörk á það? Ég er svo sem ekki bú­inn að fá svör við því en við verð­um að skoð­a þett­a úr frá öll­um hlið­um,“ sagð­i Þór­ólf­ur.

Sótt­varn­a­lækn­ir hef­­ur á­h­yggj­­ur af fyr­­ir­k­om­­u­l­ag­­i vott­­orð­­a frá ríkj­­um utan Schen­­gen. „Ég hef í minn­­is­bl­að­­i var­­að við því og sagt að mér finnst svo­l­ít­­ið bratt í þett­­a far­­ið og lagð­­i til í minn­­is­bl­að­­i að vott­­orð utan Schen­­gen yrðu í byrj­­un ein­­ung­­is tek­­in gild frá Bret­l­and­­i, Band­­a­­ríkj­­un­­um og Kan­­a­d­a. Það var ekki far­­ið eft­­ir því þar sem það var ekki tal­­ið lag­­a­­leg­­a fram­­kvæm­­an­­legt að gera það,“ sagð­­i Þór­­ólf­­ur enn frem­­ur.

Bratt hafi ver­ið far­ið í að opna land­a­mær­in, það krefj­ist við­a­mik­ill­a að­gerð­a og fari svo að mik­ið af fólk­i taki að streym­a til lands­ins gæti far­ið svo að ekki tak­ist að ráða við það. „Við gæt­um ekki stað­ið við all­ar þess­ar skuld­bind­ing­ar, all­ar þess­ar að­gerð­ir og það er það sem ég var að­al­leg­a smeyk­ur við,“ sagð­i hann.