Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að allt stefni í það að þörf verði á að herða aðgerðir vegna fjölda innanlandssmita að undanförnu. Rúmlega 1.100 manns greindust með veiruna í gær og gæti þessi mikli fjöldi brátt farið að sliga brothætt heilbrigðiskerfið enn frekar.
Ríkisstjórnin tilkynnti um óbreyttar aðgerðir í gær en þrátt fyrir það segir Þórólfur að takmarkanir gætu verið hertar fyrir hegi. Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna í morgun. Hann var spurður að því hvers vegna hann hefði ekki lagt fram harðari aðgerðir í gær í ljósi álagsins á heilbrigðisstofnanir landsins. Þórólfur sagðist alveg vera reiðubúinn til að gera það.
„Ég verð fljótur að koma þeim á borðið ef á þarf að halda og mér sýnist allt stefna í það,“ sagði Þórólfur að því er fram kemur í frétt Fréttablaðsins. Aðspurður hvort von væri á nýjum tillögum fyrir helgi svaraði Þórólfur játandi.
Um 70 prósent aukning hefur orðið á fjölda inniliggjandi vegna Covid-19 frá því 1. janúar. Tveir til sjö einstaklingar hafi þurft að leggjast inn á hverjum degi undanfarna daga. Þá hafi þrír látist vegna veirunnar á síðustu þremur dögum.
Í dag liggja 45 sjúklingar inni á Landspítala með Covid-19, sjö eru á gjörgæslu, þar af fjórir í öndunarvél. Þórólfur segir eitt barn á fyrsta ári liggja inni á Barnaspítala vegna veirunnar og á hverjum degi komi tvö til fimm börn til skoðunar á spítalann.
Nýtt minnisblað sóttvarnalæknis var lagt fram á ríkisstjórnarfundi í gær. Ákveðið var að framlengja gildandi takmarkanir næstu þrjár vikurnar.
Þórólfur var spurður hvort hann ætti von á að skila nýju minnisblaði fyrir helgi um hertari takmarkanir. Hann svaraði játandi, það gæti farið svo. Miðað við spálíkön þurfi hann mögulega að leggja til hertari aðgerðir til heilbrigðisráðherra.
Nánar á vef Fréttablaðsins.