Þór­ólfur boðar hertar að­gerðir: „Á­hyggju­efni eins og þetta lítur út“

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir segir að ekki sé mikið annað í stöðunni en að leggja til hertar að­gerðir. Gerir hann ráð fyrir að skila minnis­blaði með til­lögum sínum til heil­brigðis­ráð­herra á næstunni.

Þetta segir Þór­ólfur í sam­tali við frétta­vef Vísis.

Eins og Hring­braut greindi frá í morgun greindust 86 kórónu­veiru­smit hér á landi í gær og hafa þau ekki verið fleiri í hálfan mánuð. Tólf eru nú látnir af völdum veirunnar hér á landi eftir að ein­stak­lingur á ní­ræðis­aldri lést á Land­spítalanum.

Þór­ólfur er ekki á­nægður með þessar tölur og bendir á að of margir séu utan sótt­kvíar við greiningu. Þá hefur hann á­hyggjur af smitum á landa­mærunum en tíu ein­staklingar með virk smit greindust í fyrri skimun á landa­mærunum í gær og einn í seinni skimun.

Þór­ólfur segir að Land­spítalinn sé kominn að þol­mörkum og far­sótta­húsið í Reykja­vík líka. Ekki þurfi stóra hóp­sýkingu til að setja kerfið veru­lega úr lagi. „Þá er þetta á­hyggju­efni eins og þetta lítur út,“ segir hann við Vísi.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, tók í svipaðan streng í viðtali við DV. „Við lítum þetta mjög alvarlegum augum og teljum stöðuna vera mjög alvarlega í augnablikinu.“