Þórólfur boðar harðari aðgerðir – Björn Ingi óttast að fjórða bylgjan sé að hefjast

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ef áframhaldandi aukning verður í fjölda innanlandssmita þurfi hann vafalaust að leggja til harðari aðgerðir við heilbrigðisráðherra.

Þetta sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna í morgun. Rúmlega tuttugu smit greindust hér á landi um helgina en flest þeirra voru á landamærunum, þar á meðal tíu skipverjar um borð í súrálsskipi sem kom til Reyðarhafnar um helgina. Sex einstaklingar greindust innanlands, þar af voru þrír utan sóttkvíar.

Þórólfur sagði áhyggjuefni hversu margir væru að greinast utan sóttkvíar hér á landi og talaði hann um að samfélagslegt smit væri útbreiddara núna en áður var talið. Hann hvatti alla þá sem sýndu hugsanleg einkenni til að drífa sig í sýnatöku og halda sig til hlés þar til niðurstaða fæst.

Hann sagði sóttvarnayfirvöld enn vera að sjá dæmi um einstaklinga með einkenni sem mæta ekki í sýnatöku fyrr en mörgum dögum síðar, en slíkt geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.

Þórólfur sagði að ef framhald yrði á smitum væri honum sá kostur nauðugur að leggja til harðari aðgerðir. Hann tók þó fram að engin ákvörðun þar að lútandi lægi fyrir. Þó væri nauðsynlegt að nýta þá reynslu sem við búum að og það eina sem dugar séu samfélagslegar aðgerðir til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Þá tók Þórólfur fram að hann væri með í undirbúningi tillögur um frekari aðgerðir á landamærunum til að koma í veg fyrir að smit frá landamærunum kæmust út í samfélagið eins og dæmi væru um. Þórólfur kvaðst ekki vera reiðubúinn að ræða hvað felst í þessum aðgerðum en sagðist eiga von á því að senda þær til ráðherra á næstu dögum.

Tölurnar sem birtust í morgun um fjölda smita hafa vakið ugg hjá mörgum og óttast sumir að fjórða bylgjan sé í uppsiglingu. Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður og höfundur bókar um veiruna hér á landi, segir margt benda til þess að ný bylgja COVID-19 sé hafin eða að hefjast hér á landi.

„Nokkrir einstaklingar greindust með veiruna um helgina og voru þeir ekki allir í sóttkví. Þá kom upp hópsmit í súrálsskipi frá Brasilíu sem lagði að Mjóeyrarhöfn um helgina og þrír liggja nú inni á Landspítala með alvarleg veikindi, þar af í fyrsta sinn tveir erlendir ferðamenn,“ sagði Björn Ingi í færslu sinni á Facebook í morgun.