Þórólfur: Ástæða til að hafa áhyggjur vegna smits í gær

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna í morgun að ástæða væri til að hafa áhyggjur af smiti sem greindist utan sóttkvíar í gær.

Eitt smit greindist innanlands í gær og þá greindist eitt smit á landamærunum.

Þórólfur sagði á upplýsingafundinum að ekki hefði tekist að rekja smitið sem greindist í gær, en vinna við rakningu og raðgreiningu stendur yfir þessa stundina. Þá verða þeir sendir í sóttkví sem útsettir hafa verið fyrir smiti. Þórólfur sagði aðspurður að viðkomandi hefði verið á afmörkuðum stöðum og sennilega væru ekki mjög margir útsettir fyrir smiti.

Alls eru 32 einstaklingar nú í einangrun með virkt smit á landinu og 22 í sóttkví.

Þórólfur sagði á fundinum að tilfellið sem greindist í gær sýni, svo ekki verður um villst, að veiran er ekki horfin úr samfélaginu. Ef við pössum okkur ekki getum við fengið aðra bylgju í fangið.