Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að hann muni að líkindum leggja það til við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra að allir farþegar sem koma til landsins fari í tvöfalda skimun á landamærunum.
Að undanförnu hafa einstaklingar getað valið á milli þess að fara í sóttkví eða tvöfalda skimun. Brögð hafa verið að því að einstaklingar hafi svikist undan því að fara í sóttkví.
Þórólfur var gestur Bítisins á Bylgjunni í morgun þar sem þetta kom meðal annars fram.
„Landamæraverðir hafa talað um að það sé í mörgum tilfellum erfitt að fá fólk til þess að fara í þessa tvöföldu skimun. Fólk sé kannski að velja fjórtán daga sóttkví og það sé kannski nokkuð ljóst að fólk ætli ekki að halda þessa fjórtán daga sóttkví,“ sagði Þórólfur sem bætti við að hættan fælist í þessu.
„Ég hef lagt á það áherslu og mun leggja það til sennilega við ráðherra hvort við getum ekki reynt að skylda alla til þess að fara í tvöfalda skimun út af þessu.“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, sagði í viðtali við Fréttablaðið í gærkvöldi að harðar aðgerðir á landamærunum væri helsta ástæða þess að faraldurinn sé nú í rénun hér á landi en í vexti allt í kringum okkur. Sagði Kári lykilatriði að herð reglur enn frekar eins og flest bendir nú til að raunin verði.