Þórólfur: „Algjörlega ljóst að það eru margir ekki sáttir“

„Ég held að Már hafi nú ekki verið að lýsa sinni skoðun heldur frekar kollega sinna. En það er algjörlega ljóst að það eru margir ekki sáttir,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í dag.

Þórólfur var þar spurður út í ummæli Más Kristjánssonar, yfirlæknis á smitsjúkdómadeild Landspítalans, þess efnis að læknar væru margir hverjir hugsi og jafnvel reiðir yfir því að til standi að opna landið á nýjan leik þann 15. júní næstkomandi.

Már var í viðtali í Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun þar sem hann sagði tímann eiga eftir að leiða í ljós hversu farsæl þessi ákvörðun verður. Viðbrögð fólks væru til marks um ótta að við gætum verið að kalla yfir okkur hörmungar.

„Sem kann að vera að við séum að gera í ljósi þess sem við þekkjum utan úr heimi, þar sem sam­fé­lög fóru hrylli­lega illa út úr þessu. Við virðumst hafa sloppið fyrir horn enn þá alla vega. Mér finnst þetta vera rétt­mæt til­finning hjá fólki að þetta muni kannski verða eitt­hvað hræði­legt tíma­bil. Það er alveg skiljan­legt,“ sagði Már.

Þórólfur benti á að viðbrögð margra hafi verið hörð í upphafi faraldursins en yfirvöldum var legið á hálsi fyrir að bregðast of hægt við. Vildu margir að landinu yrði hreinlega lokað áður en smit barst til landsins.

Í síðustu viku á­kváðu stjórn­völd að opna landa­mærin frá og með 15. júní en þó með á­kveðnum tak­mörkunum. Þeir ferða­menn sem koma til landsins, bæði inn­lendir og er­lendir, þurfa að gangast undir skimun við komuna til landsins eða fram­vísa vott­orði.

Þórólfur sagði að það viðhorf sem Már lýsti í morgun sýndi að fólk hefði áhyggjur af faraldrinum og hvernig hann þróast.

„Menn hafa fullan rétt á að hafa sína skoðun, en ég held að læknar og aðrir þurfi að taka tilliti til þess að það þarf að opna landið á einhverjum tímapunkti,“ sagði Þórólfur sem bætti við á einhverjum tímapunkti, hvort sem það er núna, eftir sex mánuði eða eitt ár, stöndum við frammi fyrir þeirri spurningu hvernig við ætlum að gera þetta.

Þórólfur hefur áður lýst þeirri skoðun sinni að nú sé rétti tímapunkturinn enda lítil aðsókn í utanlandsferðir um þessar mundir. Með því að gera þetta núna fáum við reynslu sem hægt verður að læra af. Þórólfur sagðist á fundinum vænta þess að geta rætt þessi sjónarmið við kollega sína í læknastéttinni.