Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær, þess efnis að yfirvöldum sé ekki heimilt að skikka fólk í sóttkví í farsóttarhúsi, verði áfrýjað.
Þetta kom fram á upplýsingafundi almannavarna nú á tólfta tímanum. Þórólfur sagði að dómurinn væri óheppilegur út frá sóttvarnarsjónarmiðum og hætta væri á að sóttvarnir hér á landi færu í uppnám.
Sagði Þórólfur að ef dómurinn muni standa sé hætta á að smitum muni fjölga á nýjan leik og það gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Hvatti hann stjórnvöld til að tryggja lagagrundvöll fyrir því að hægt verði að starfrækja farsóttarhús hér á landi.