Þórólfur ætlar ekki að breyta neinu

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki standi til að breyta fyrirkomulagi bólusetninga hér á landi. Þetta sagði Þórólfur í svari til RÚV í dag.

Tilefnið er stefnubreyting sem orðið hefur þegar kemur að bólusetningu fólks sem er 65 ára eða eldra, en Danir, Svíar og Norðmenn hafa nú bæst í hóp þeirra þjóða sem ætla að bólusetja þennan aldurshóp með bóluefni AstraZeneca.

Hér á landi hafa einstaklingar í elsta aldurshópnum verið bólusettir með bóluefni Pfizer á meðan yngra fólk, til dæmis starfsmenn hjúkrunar- og dvalarheimila, hefur verið bólusett með bóluefni AstraZeneca. Þetta tíðkaðist líka víða annars staðar til að byrja með en hefur breyst. Auk Svíþjóðar, Noregs og Danmerkur hafa til dæmis Þjóðverjar og Frakkar leyft notkun bóluefnisins í elstu aldurshópunum.

Í fréttinni kemur fram að Þórólfur hafi svarað fyrirspurn RÚV svona: „Á þessari stundu eru engin áform um breytingar á fyrirkomulagi bólusetninga.“