„Á hvaða stað erum við komin þegar enginn kippir sér upp við enn eitt risatapið í Evrópukeppni?,“ spyr Þorlákur Árnason, einn okkar reyndasti knattspyrnuþjálfari og yfirmaður knattspyrnumála hjá knattspyrnusambandi Hong Kong.
Þorlákur veltir stórtapi KR-inga gegn Skotlandsmeisturnum í Glasgow Celtic í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrir sér á Twitter. KR steinlá, 6-0, og átti aldrei möguleika gegn Celtic sem er að hefja nýtt tímabil í Skotlandi.
Íslensk félagslið hafa ekki beint riðið feitum hesti frá leikjum sínum í Evrópu á undanförnum árum en á því eru þó nokkrar undantekningar. Stjarnan var á sínum tíma ekki langt frá því að komast í Evrópudeildina árið 2014 og þá átti FH góða leiki gegn sterku liði Braga árið 2017. Undanfarin sumur hefur þó fátt verið um fína drætti ef svo má segja.
Í færslunni er Þorlákur spurður hvað þurfi að gerast til að íslensk lið fari að eiga möguleika gegn sterkum liðum í nágrannalöndum okkar. Þorlákur segir að ekki sé auðvelt að svara því en bendir á að Celtic sé að byrja sitt tímabil og því ætti að vera gott fyrir íslenskt félagslið að mæta því núna.
„Að KR tapi fyrir Molde og Celtic með 6 mörkum á útivelli 2 ár í röð er mikið áfall fyrir íslenskan fótbolta,“ segir Þorlákur sem er á því að fótboltinn hér heima þurfi að fara í ákveðna naflaskoðun.
„Erum við áhugamenn, hálfatvinnumenn eða atvinnumenn? Mjög þreytt og úrelt að launastrúktur sé ekki opinn þannig að menn viti hvað er lagt í hlutina, menn yrðu síðan dæmdir eftir því. Félög keppast alltaf við að segja að önnur lið borgi meira. Síðan er hægt að fara í tæknimál.“
Þorláki er síðan bent á að til dæmis Stjarnan hér á landi sé að borga leikmönnum sínum um það bil jafn mikið á ári og meðalleikmaður í liði Celtic fær á ársgrundvelli. Því séu íslensk félagslið ekki á sama stað og til dæmis Celtic. Þorlákur er þó á því að íslensku liðin verði að gera betur.
„Tapa fyrri leiknum úti í fyrra 7-1, 3-0 eftir 30 mín í gær. Þessi tvenn úrslit eru ekki íslenskum liðum sæmandi. Hvað er til ráða? Greina fyrst hvað við erum að gera í Pepsi Max. Hver er styrkleikinn og hvernig getum við bætt hann. Líkt og áður vil ég skilgreiningu á hvað við erum?“