Þórir svaf í kjallara Ráð­hússins en fékk svo vinnu þar sem hús­vörður

Þórir Kjartans­son sagði ó­trú­lega sögu sína í við­tali við Ís­land í dag í gær­kvöldi. Þórir var alinn upp við alkó­hól­isma og byrjaði sjálfur að drekka fjór­tán, fimm­tán ára og var á kafi í neyslu í mörg ár. Þórir ætlaði sér að enda sem róni en ör­lögin voru önnur.

Í við­talinu kom meðal annars fram að Þórir hefði lent í mis­notkun sem barn og verið mjög reiður sem barn og ung­lingur. Honum gekk illa í skóla, var með at­hyglis­brest og átti erfitt með ein­beitingu. Svo fór að honum var vísað úr grunn­skóla og kláraði hann því aldrei grunn­skólann.

Líf Þóris litaðist mjög af neyslu, fíkni­efna­sölu og of­beldi á hans yngri árum og var gisti­staður hans til að mynda um tíma bíla­kjallarinn í Ráð­húsinu. Í við­talinu kemur fram að Þórir hafi svo fengið vinnu hjá Ráð­húsinu sem hús­vörður og því kominn býsna langt frá þeim tíma er hann gisti í kjallaranum til að fá þak yfir höfuðið.

Þórir segir að gamall vinur hafi verið einn af ör­laga­völdunum í lífi hans, en þeir hittust þegar Þórir var í strætó á leið upp í Breið­holt eitt sinn. Gamli vinurinn var edrú og sá hvatti Þóri til að koma með sér í tólf spora prógramm. Eftir það fór líf hans að breytast, hann leitaði til Sam­hjálpar þar sem hann fékk góða að­stoð og meðal annars vinnu á Nytja­markaðnum.

Hann kynntist svo konu sem vann hjá Sam­hjálp. „Við förum að búa saman, eignumst þetta fal­lega líf og endanum giftum við okkur,“ sagði hann meðal annars í við­talinu.

Við­talið við Þóri má sjá í heild sinni hér.