Leikarinn Þórir Sæmundsson, sem steig fram í viðtali við Kveik í gærkvöldi, segir að um hafi verið að ræða erfiðasta atvinnuviðtalið.
Þetta kemur fram í færslu á Facebook, þar segir einungis: „Erfiðasta atvinnuviðtalið“
Viðtal við Þóri í gærkvöldi vakti mikla athygli og mikið umtal en honum var sagt upp störfum í Þjóðleikhúsinu árið 2017 fyrir að senda ólögráða stúlkum kynferðislegar myndir.
Síðan þá hefur Þóri gengið illa að fá vinnu og sagðist hann hafa sótt um 200 til 300 störf án árangurs. Þá hafi hann verið rekinn úr vinnu eftir stuttan tíma eftir að hafa verið gúgglaður.
Í þættinum var því velt upp hvort einstaklingar geti átt afturkvæmt í samfélagið eftir að hafa orðið uppvísir að ámælisverðri hegðun á borð við kynferðisbrot. Í viðtalinu sagðist Þórir ekki hafa vitað að stúlkurnar væru ólögráða en viðurkenndi þó dómgreindarbrest.
Sumir hrósuðu Þóri fyrir að stíga fram en aðrir gagnrýndu viðtal Kveiks og sögðu að um hafi verið að ræða drottningarviðtal.
Nokkrir hafa stappað stálinu í Þóri á Facebook, þar á meðal lögmaðurinn Gísli Kr. Björnsson og söngkonan Guðrún Árný.