Þórir Sæm opnar sig: „Þarna stóð ég, rekinn og vonlaus“

Leikarinn Þórir Sæmundsson, sem steig fram í Kveik í nóvember síðastliðnum, rifjar upp minningu á Facebook-síðu sinni í morgun.

Þóri var sagt upp störfum í Þjóðleikhúsinu árið 2017 fyrir að senda ólögráða stúlkum kynferðislegar myndir. Í viðtalinu í Kveik kom fram að Þóri hefði gengið bölvanlega að fá vinnu og sagðist hann hafa sótt um 200 til 300 störf – án árangurs.

Í færslunni deilir hann annarri færslu frá þessum degi árið 2017, en í henni tilkynnti hann að uppselt væri á frumsýningu Álfahallarinnar þetta sama kvöld. Með færslunni deildi hann mynd af sér í gervi trúðs.

Í færslunni í morgun segir hann:

„Mér var sagt upp í störfum frá leikhúsinu í fyrstu viku við æfingar á þessu leikriti. 4 vikum fyrir frumsýningu. Það vissi það enginn. Kollegar mínir vissu ekki hvað ég var að ganga í gegnum í þessu ferli,“ segir Þórir.

Hann bætir við að ekkert handrit hafi verið að sýningunni, en markmiðið hafi verið að fjalla um samtíma okkar á listrænan hátt allt undir því yfirskyni að það væri verið að hylla Þjóðleikhúsið og sögu þess.

„Ok. Það er eins og þetta sé skáldsaga. Þarna stóð ég, rekinn og vonlaus, útskúfaður frá stofnunni með skömm; en stend samt með hópnum og hampa leikhúsinu, sögu og mikilvægi þess. Skrítnasti tími lífs míns hófst þarna, með þessari skrítnustu sýningu sem ég lék í á mínum ferli. Hefði ég ekki getað falið mig á bakvið þennan trúð veit ég ekki hvernig það allt saman hefði farið.“