Þórir og Heiðar Örn vilja stýra fréttastofu RÚV

Fjórir sóttu um starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins sem auglýst var til umsóknar í janúar. Þetta kemur fram á vef RÚV. Rakel Þorbergsdóttir lét af störfum um áramótin og hefur Heiðar Örn Sigurfinnsson stýrt fréttastofunni á meðan umsóknir bárust.

Heiðar Örn, sem hefur verið á fréttastofunni í áraraðir, er meðal umsækjenda.

Valgeir Örn Ragnarsson, fréttamaður, og Þór Jónsson, sviðsstjóri, sækja einnig um.

Vekur svo athygli að Þórir Guðmundsson, sem var látinn fara sem fréttastjóri Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, er einnig að sækja um stöðuna.

Eftirfarandi sóttu svo um starf dagskrárstjóra Rásar 2:
Ágúst Héðinsson, verkefnastjóri.
Guðmundur Gunnarsson, breytingastjóri.
Jóna Valborg Árnadóttir, sérfræðingur.
Matthías Már Magnússon, aðstoðardagskrárstjóri Rásar 2.
Sigurður Ragnarsson, framkvæmdastjóri.