Samtök íþróttafréttamanna hafa tilkynnt hverjir koma til greina í valinu á íþróttamanni ársins og þjálfara ársins. Fátt kemur á óvart á listanum yfir íþróttamenn ársins en margir hafa klórað sér í kollinum yfir því hverjir eru tilnefnir sem þjálfari ársins.
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins, er tilnefndur eins og Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari Kristanstad í Svíþjóð. Þá er Heimir Guðjónsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, tilnefndur.
Það sem vekur einna mesta athygli er að gengið er framhjá Þóri Hergeirssyni en hann gerði kvennalið Noregs að Evrópumeisturum í handbolta á dögunum. Þórir hefur stýrt norska liðinu í rúman áratug og unnið Evrópumeistaratitilinn fjórum sinnum, heimsmeistaratitilinn tvisvar og Óiympíutitilinn einu sinni.
Fjörugar umræður hafa farið fram um þetta á Twitter og er það KA-maðurinn og handboltaþjálfarinn Stefán Árnason sem vakti athygli á þessu. Hann sagði:
„Brandarinn með Þórir Hergeirsson og þjálfara ársins á Íslandi heldur áfram. Meira grínið en þó ekki fyndið. Og ekki reyna að segja mér að það sé ekki hægt að kjósa hann af því að valið sé áður en mótið kláraðist. Það er árið 2020 og lítið mál að kjósa rafrænt 20. des.“
Ívar Benediktsson, íþróttafréttamaður á Morgunblaðinu til margra ára, sagði að kosningin hefði verið rafræn að þessu sinni. Hann skaut svo létt á kollega sína í stétt íþróttafréttamanna. „Sennilega þarf hann að vinna til 11 verðlauna á stórmótum til viðbótar til að eiga möguleika.“
Stefán rifjar upp að Ólympíugull og Evrópumeistaratitill árið 2016 hafi ekki einu sinni komið honum á topp þrír listann. „Það þarf að endurskoða þessa kosningu verulega ef á að vera hægt að taka mark á henni.“