„Það er leitt hvernig umræðan um hertar sóttvarnaraðgerðir á landamærunum hefur þróast. Ferðaþjónustunni er stillt upp sem óvini almennings,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line, í aðsendri grein á vef Vísis í dag.
Þórir segir að látið hafi verið að því liggja að ný bylgja af smitum sé ferðaþjónustunni að kenna og aldrei hefði átt að opna landið eða hætta skimun á ferðamönnum frá ákveðnum löndum.
„Staðreyndin er auðvitað að ferðaþjónustan hefur ekkert að segja um hvernig smitvörnum er háttað. Aftur á móti er skiljanlegt að fólk í ferðaþjónustu bendi á þær afdrifaríku afleiðingar á afkomuna sem hertar sóttvarnaraðgerðir hafa. Skiljanlegt er að margir í ferðaþjónustunni hafi efasemdir um gildi hertra aðgerða í ljósi þess að eldra fyrirkomulag - þ.e. ein skimun á öllum erlendum ferðamönnum og tvær á heimamönnum - skilaði mjög góðum árangri þar til henni var hætt,“ segir Þórir meðal annars.
Þórir segir að mikil mistök hafi verið gerð þegar ákveðið var að hætta að skima farþega frá fjórum svokölluðum öryggum löndum. Þetta var gert eftir að Íslensk erfðagreining kippti að sér höndum.
„Ferðaþjónustan hafði ekkert með útfærsluna á opnunina frá „öruggum“ löndum að gera. Það var ákvörðun sóttvarnalæknis. En skiljanlega kom þessi ákvörðun í veg fyrir stórkostleg vandræði á Keflavíkurflugvelli, þegar skimunargetan réð allt í einu ekki við fjöldann.“
Þórir segir að kórónuveiran hafi fyrir vikið komist undan radarinn og á sama tíma hafi landsmenn verið nánast hættir að spá í smitvarnir.
„Nú sitjum við uppi með veirubylgju númer tvö, sem skrifast á smit frá útlöndum sem andvaralausir íbúar landsins hafa svo tekið að sér að dreifa. Viðbrögð yfirvalda og ráðgjafa þeirra, sem áður töldu í lagi að hleypa ferðamönnum inn án skimunar, eru að krefjast nú tvöfaldrar skimunar á alla og sóttkví á milli skimana,“ segir Þórir.
Hann bendir á að viðskipti ferðamanna hafi verið undirstaða aukins hagvaxtar. „Það eru því hagsmunir okkar allra að ganga ekki svo harkalega til verks að nánast ætla að slátra þessari mikilvægu atvinnugrein.“
Grein Þóris má lesa í heild sinni hér.