Þór­hildur vísaði í bleika köku Bjarna – Bjarni ekki sáttur: „Mér finnst þetta ó­­smekk­­legt“

„Þegar hæst­virtur fjár­­mála­ráð­herra var for­­sætis­ráð­herra í stutta stund kom hann færandi hendi á HeF­orS­he-við­burð í New York með bleika köku sem hann skreytti sjálfur,“ sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­­maður Pírata, í ó­­undir­búnum fyrir­spurna­tíma á Al­þingi í morgun.

Þór­hildur spurði þar Bjarna út í launa­­mál hjúkrunar­­fræðinga, en eins og komið hefur fram máttu hjúkrunar­­fræðingar á Land­­spítalanum þola tekju­skerðingu um mánaða­­mótin vegna niður­­­fellingar svo­kallaðs vakta­á­lags­auka. Einn þessara hjúkrunar­­fræðinga, Sól­ey Hall­­dórs­dóttir, sem starfar á gjör­­gæslu­­deild Land­­spítalans í Foss­vogi, fékk til dæmis rúmum 40 þúsund krónum minna um þessi mánaða­­mót en áður.

Gerist á vakt Bjarna

Þór­hildur vísaði í orð Bjarna þess efnis að hann vonaði að hans yrði minnst fyrir að hafa lagt sitt af mörkum til að auka jafn­rétti kynjanna.

„Hæst­virtur ráð­herra hefur haft hvert tæki­­færið á fætur öðru til að sýna það í verki að hann meti störf kvenna raun­veru­­lega til jafns við karla. Hann hefur haft mörg ár til þess sem karl í valda­­stöðum en þrátt fyrir þau fögru fyrir­­heit, þrátt fyrir fagur­gala um jöfn laun fyrir sam­bæri­­lega vinnu og þrátt fyrir bleiku köku­­skreytinguna er það á vakt hæst­virts ráð­herra sem ekki nást kjara­­samningar við hjúkrunar­­fræðinga. Það er á vakt hæst­virts ráð­herra sem ljós­­mæður þurfa að sæta gerðar­­dómi og það var líka á hans vakt sem fjár­­mála­ráð­herra sem hjúkrunar­­fræðingar máttu þola gerðar­­dóm í stað samninga fyrir fimm árum síðan,“ sagði Þór­hildur og bætti við:

Anton Brink

„Nú þegar kjara­­samningar þessarar fram­línu­sveitar eru enn og aftur lausir og hafa verið lausir í heilt ár svarar hæstv. ráð­herra fyrir­­­spurn hv. þm. Jóns Þórs Ólafs­­sonar um daginn á þá leið að hann viti ekki hvað það kosti ríkis­­sjóð að semja við hjúkrunar­­fræðinga. Hæstv. ráð­herra sem fer með samnings­um­­boð ríkisins í kjara­­málum var sem sagt ekki einu sinni með­vitaður um hvað það kostar að ganga að kröfum þessarar grund­vallar­­kvenna­­stéttar í landinu. Það er auð­vitað með ó­­líkindum.“

„Ósmekklegt“

Bjarni var ekki sáttur við þessi um­­­mæli Þór­hildar í ræðu­­stól og lét hana vita af því.

„Ég ætla að láta vera að svara þessum ó­­smekk­­lega út­úr­dúr um HeF­orS­he-á­takið sem ég og við í ríkis­­stjórninni höfum af fullum hug tekið þátt í. Það hófst reyndar í ríkis­­stjórnar­­tíð Sig­­mundar Davíðs Gunn­laugs­­sonar. Þar höfum við hrein­­lega lagt veru­­lega mikið af mörkum með fjölda­­mörgum við­burðum og höfum fengið mikið hrós fyrir þannig að ég átta mig ekki á því hvaða erindi upp­­rifjun á því á­taki á inn í um­­ræðuna í dag. Mér finnst þetta ó­­smekk­­legt,“ sagði hann.

Ljóst að um tímabundið átak var að ræða

Bjarni talaði síðan um kjara­­samninga hjúkrunar­­fræðinga og benti á að ríkið hefði verið í við­ræðum við hjúkrunar­­fræðinga frá því áður en samningar urðu lausir.

„Samnings­lotan sem núna stendur yfir hefur skilað veru­­lega miklu, sömu­­leiðis sér­­stakt átak sem hefur verið í gangi á undan­­förnum árum á Land­­spítalanum. Þar hefur t.d. verið unnið í þremur mis­munandi á­tökum á stofnuninni til að bæta starfs­um­hverfi hjúkrunar­­fræðinga og gera starfið meira að­laðandi. Það er að skila sér núna í því að í mið­lægum nýjum kjara­­samningum er að verða grund­vallar­breyting á vakta­­fyrir­­komu­lagi, ekki bara hjúkrunar­­fræðinga heldur annarra stétta. Í raun er komið sam­komu­lag um þessa breytingu sem var megin­­á­herslu­at­riði hjúkrunar­­fræðinga í þessari kjara­lotu á þeim tíma sem við erum hér að tala saman. Um þetta er komið sam­komu­lag sem mun leiða til þess að vakta­vinnu­­fólk mun þurfa að vinna færri vinnu­­stundir í hverri viku og vakta­­fyrir­­komu­lagið verður tekið til endur­­­skoðunar.“

Bjarni sagði einnig að farið hefði verið í ólík tíma­bundin átök á Land­­spítalanum sem Land­­spítalinn sem stofnun hefði borið á­byrgð á að fram­­kvæma.

„Það sem er í um­­ræðunni núna er átak sem við getum kallað sér­­stakt vakta­á­lag sem er að renna sitt skeið. Það hefur þær ó­­heppi­­legu af­­leiðingar í tíma að það kemur út eins og launa­lækkun en allan tímann var ljóst að um var tíma­bundið átak var að ræða. Verk­efnið núna er að búa þannig um kjara­­samninga­­gerðina að allir hjúkrunar­­fræðingar geti notið góðs af niður­­­stöðunni og fengið þegar upp er staðið betri kjör.“