Þórhildur Sunna kveður Freyju: „Fór frá okkur allt of snemma“

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, birti í hjartnæma kveðju til hundsins Freyju Forynju sem dó á heimili hennar um helgina.

„Elsku hjartans hundurinn okkar, orkuboltinn og gleðigjafinn Freyja Forynja er farin frá okkur. Hún var bráðkvödd á heimili okkar um helgina aðeins eins og hálfs árs gömul.“

Orð Þórhildar hreyfa við köldustu hjörtum:

„Freyja elskaði fólkið sitt afar heitt og það fundum við öll sem fengum að fylgja henni í gegnum lífið. Hún myndaði alveg sérstakt og fallegt samband við son okkar, Antoni.

Freyja hafði mikla ástríðu fyrir því að veiða snjó, fjúkandi laufblöð og hvers kyns ljós eða skugga. Freyja elskaði egg og nautahakk og hreinlega allt sem við fjölskyldan vorum að borða.“

Þórhildur segir að Freyja hafi farið frá þeim allt of snemma:

„Freyja fór frá okkur allt of snemma og hún skilur eftir sig tómarúm í hjarta okkar. Þögn, þar sem alltaf mátti heyra lopputak, kyrrð þar sem alltaf mátti búast við fagnaðarlátum. Sorg þar sem alltaf mátti finna til gleði með henni.“