Þór­hildur Sunna í­trekaði orð sín um Donald Trump: „Fas­isti, kven­hatari og ras­isti“

„Morðið á Geor­ge Floyd var enn einn dropinn í barma­fullan bikar kyn­þátta­mis­réttis og lög­reglu­of­beldis gagn­vart svörtum Banda­ríkja­mönnum. Mót­mæli og reiði al­mennings í kjöl­far þessa voða­verks eru bæði skiljan­leg við­brögð við ó­rétt­læti og of­beldis­menningu,“ sagði Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, í um­ræðum um störf þingsins á Al­þingi í gær.

Þór­hildur ræddi þar at­burðina í Banda­ríkjunum en eins og kunnugt er hefur hálf­gert upp­lausnar­á­stand ríkt í mörgum borgum Banda­ríkjanna vegna dauða Geor­ge Floyd. Þá hafa við­brögð Donald Trump við at­burðunum vakið at­hygli en hann hefur hótað því að beita her­valdi ef ekki tekst að lægja mót­mæla­öldurnar. Þór­hildur Sunna segir að við­brögð Trumps séu ekki sæmandi for­seta í lýð­ræðis­ríki og beri raunar merki um djúpa and­stöðu for­setans við rétt borgaranna til að mót­mæla.

Í ræðu sinni sagði Þór­hildur Sunna:

„Virðu­legi for­seti. Stuttu eftir að Donald Trump tók við em­bætti sagði ég í þessum ræðu­stól, með leyfi for­seta: „Ég hef á­hyggjur af því að for­seti Banda­ríkjanna sé fas­isti, kven­hatari og ras­isti …“ Þessi um­mæli vöktu at­hygli á sínum tíma og þótti hæst­virtum utan­ríkis­ráð­herra t.d. til­efni til að segja þau ó­við­eig­andi í kjöl­farið.“

Þór­hildur sagði að í milli­tíðinni hefði mikið vatn runnið til sjávar en hún er enn sömu skoðunar og raunar stað­fastari en áður.

„Núna hef ég ekki bara á­hyggjur heldur tel ég mig vita að for­seti Banda­ríkjanna er fas­isti, kven­hatari og ras­isti. Og þó að ég viti að hæst­virtum utan­ríkis­ráð­herra finnist ó­við­eig­andi að kalla hlutina réttum nöfnum, og þó að ég viti líka að mögu­lega sé ekki heppi­leg utan­ríkis­stefna að gera það ná­kvæm­lega þá sakna ég þess að sjá ráð­herrann og ríkis­stjórnina gagn­rýna Banda­ríkja­for­seta fyrir að­farir sínar að lýð­ræðinu vestan hafs. Ég kalla eftir því að rödd Ís­lands á al­þjóða­vett­vangi heyrist; gegn mis­rétti og gegn að­förum Banda­ríkja­for­seta að lýð­ræðinu þar í landi.“