„Latasti þingmaðurinn kvartar yfir vinnusemi kollega síns. You can´t make this shit up,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, varaformaður þingflokks Pírata, um deilur þeirra Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og samflokksmanns hennar, Björns Leví Gunnarssonar.
Sjá einnig: Brynjar og Björn Leví tókust á í Bítinu: „Þú verður að sýna einhverja hófsemi“
Þórhildur skrifaði færslu á Facebook í morgun meðan Brynjar og Björn Leví ræddu þær fjölmörgu fyrirspurnir sem Björn hefur lagt fram. Brynjari finnst nóg um og segir margar þeirra hreinlega vera tilgangslausar og til þess eins að þyrla upp moldviðri.
„Á Bylgjunni akkúrat núna eru Björn Leví og Brynjar Níelsson að tala um fyrirspurnir Björns Leví. Brynjar Níelsson sem lagt hefur fram heilt eitt frumvarp og eina fyrirspurn að eigin frumkvæði, bjó til 10 fyrirspurnir til þess að kvarta yfir því hvernig Björn Leví Gunnarsson vinnur vinnuna sína. Latasti þingmaðurinn kvartar yfir vinnusemi kollega síns. You can´t make this shit up,“ segir Þórhildur Sunna.