Þórhildur Gyða: „Við megum ekki stoppa hér, því þeir eru fleiri“

Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, sem steig fram á föstudag og greindi frá ofbeldi landsliðsmanns í knattspyrnu, segir ómetanlegt að upplifa ekki þá tilfinningu að hún sé ein.

Eins og flestir vita sagði Guðni Bergsson, formaður KSÍ, af sér í gær vegna viðbragða sambandsins við ásökunum um ofbeldi landsliðsmanna. Stjórn sambandsins sat á maraþonfundi í gær og síðdegis var tilkynnt að Guðni hefði ákveðið að stíga til hliðar. Þórhildur steig fram á Twitter í gærkvöldi og þakkaði fyrir þann mikla stuðning sem hún hefur fundið fyrir að undanförnu.

„Það er ómetanlegt að upplifa ekki tilfinninguna að ég sé ein. Það eru svo margir að taka slaginn, takk öll þið eruð mögnuð,“ sagði hún meðal annars. Þá bætti hún við:

„Þetta er byrjun og þetta er sigur sem ég fagna. Aldrei var ég að búast við þessu. En við megum ekki stoppa hér, því þeir eru fleiri. Þolendur eiga betra skilið en að þurfa að horfa á gerendur sína leika sér með bolta fyrir hönd þjóðarinnar. Við eigum betra skilið en að þeir séu dáðir og dýrkaðir á meðan við sitjum eftir með djúp sár sem gróa oft aldrei. Til allra þolenda vil ég segja, ég stend með ykkur, ég trúi ykkur og saman getum við þetta.“