Þórhildur er í opnu sambandi: „Börnin okkar vita af þessu“

Þórhildur Magnúsdóttir hefur vakið mikla athygli eftir að hún steig opinberlega fram til að ræða opið samband sitt. Hún segir í viðtali við RÚV að börnin viti af þessu. Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, sambandsráðgjafi, segir í sama viðtali að rannsóknir sýni að opin sambönd komi ekki niður á börnum.

Þórhildur segir að börnin séu afar meðvituð um fyrirkomulagið. „Börnin okkar vita af þessu og við höfum, á þeim forsendum sem eru við hæfi aldurslega, sagt þeim hvernig sambandið er, alveg eins og við myndum fræða um hinsegin málefni eins og að það er ekki alltaf karl og kona,“ sagði hún.

„Ég sagði þeim frá því að ég hefði verið í fréttunum og sonur minn níu ára var svona: ha, varstu í fréttunum af því að þú átt mann og kærasta? Ég sagði já og hann bara af hverju er það í fréttunum? Honum fannst það ekkert merkilegt.“

Aldís segir a rannsóknir á fjölkærum samböndum sýni að sambandsánægja sé sambærileg og í þeim sem eru lokuð. „Og varðandi hvernig börnum vegnar, það kemur vel út. Börn sem eiga fjölkæra foreldra þeim líður og vegnar vel,“ segir Aldís. „Það er búið að rannsaka þessa hluti svo við getum ekki sagt að þeir hafi slæm áhrif.“