Þórhildur ætlar ekki að mæta Jóni Steinari: „Ég er upptekin af miklu merkilegri manni“

„Ég er upptekin af miklu merkilegri manni en Jóni Steinari. Ég á 19 daga gamlan son og hef mikilvægari hluti að gera en að munnhöggvast við hörundsáran flokksgæðing,“ segir Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, á Twitter.

Eins og Hringbraut greindi frá í morgun skoraði Jón Steinar Gunnlaugsson á hana og Rósu Björk Brynjólfsdóttur, þingmann VG, að mæta sér á opnum fundi.

Mikið hefur verið fjallað um þá ákvörðun Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að fela Jóni Steinari að skoða leiðir til að stytta málsmeðferðartíma í réttarvörslukerfinu. Jón Steinar hefur verið sakaður um að grafa undan trúverðugleika brotaþola kynferðisofbeldis í gegnum tíðina. Þá var fullyrt að hann hefði hvatt þolendur til að fyrirgefa ofbeldismönnum sínum.

Jón Steinar segir að þetta hafi allt verið tekið úr samhengi og vildi hann mæta Þórhildi og Rósu Björk þar sem þær hafa haft sig í frammi í umræðunni. Þórhildur hefur þó öðrum hnöppum að hneppa enda nýbökuð móðir.

„Hans afstaða er ljós og mín líka. Einnig afstaða Stígamóta og Kvenréttindafélags Íslands til ráðningar hans. Augljós er einnig gapandi mótsögn; Eru kynferðisbrot undir í vinnu Jóns Steinars eða ekki? Hann vill meina það, skipunarbréfið hans ber þess merki en dómsmálaráðherra segir svo ekki vera. Hver er að ljúga? Ráðherra, skipunarbréfið eða Jón Steinar?“

Þórhildur Sunna spyr svo að lokum hvort það sé ekki afhjúpandi að Áslaug Arna taki það sérstaklega fram að hún vilji ekki að hann hlutist til um kynferðisbrotamál. „Jón ætti öllu heldur að halda opinn fund með ráðherra til þess að útkljá þessa mótsögn.“