Í bók sem Séra Þórhallur Heimisson gefur út svarar hann öllu sem þú vildir vita um Biblíuna en þorðir ekki að spyrja um.
Hann mætti í Fréttavaktina á Hringbraut til þess að spjalla um bókina, en í henni fjallar hann um Biblíuna á gagnrýninn hátt frá ótal hliðum í ljósi nýjustu rannsókna og leitað er svara við fjölmörgum spurningum um Biblíuna sem tekist hefur verið á um síðustu öldina.
Þórhallur segir marga kafla Biblíunnar stangast á við hvern annan. Öfgamenn túlki oft orð Biblíunnar um stöðu kvenna og samkynhneigðra þannig að konur eigi helst að þegja og vera ósýnilegar og að samkynhneigðir séu nánast réttdræpir.
„Guð er víða bæði þjóðarmorðingi og hvetur til fjöldamorða. Það verður að segja frá því líka,“ segir Þórhallur, en hann gagnrýnir eigin kirkju og tekur fyrir skrif Marteins Lúthers og lítherstrúar í bókinni.
„Marteinn Lúther skrifaði hræðilega um gyðinga, það má segja að margt af því sem hann skrifaði var grunnur að hugmyndafræði nasista,“ segir hann og gagnrýnir sína kirkju fyrir að neita að tala um þessa sögu.
Hér að neðan má sjá viðtal við Þórhall úr Fréttavaktinni: